Reglur og leiðbeiningar fyrir VII. Píanókeppni Íslandsdeildar EPTA

VII. Píanókeppni Íslandsdeildar EPTA í Kaldalóni Hörpu 24. – 25. nóv. 2018

Yfirdómari: Prófessor Julia Mustonen-Dahlkvist*

Dómnefnd 1. umferð
Alexey Lebedev, Aristo Sham, Daumants Liepiņš

Dómnefnd 2. umferð & úrslit í Hörpu:
Prófessor Julia Mustonen-Dahlkvist, Dr. Nicholas Pokki, Martin Lysholm Jepsen

Verndari keppninnar er Mennta- og menningarmálaráðherra
Styrktaraðilar: RÚV Rás 1, Kennarasamband Íslands, Tónlistarsjóður.

I

Keppnin er opin nemendum sem stunda píanónám hjá EPTA kennara á Íslandi í grunn-, mið- og framhaldsstigi 25. nóv. 2018

Núverandi kennarar keppenda séu fullgildir meðlimir í Íslandsdeild EPTA og skuldlausir við félagið 1. júlí 2018

Keppt verður í þremur flokkum:

1. flokkur 7-11 ára (fædd á tímabilinu 1.1. 2007-31.12. 2007 eða síðar)
2. flokkur 12-15 ára (fædd á tímabilinu 1.1. 2003-31.12. 2003 eða síðar)
3. flokkur 16-19 ára (fædd á tímabilinu 1.1. 1999-31.12. 1999 eða síðar)

II

Keppendur sendi inn rafræna umsókn á netfang Íslandsdeildar EPTA: epta@epta.is

Umsóknarfrestur: 1. júlí 2018

Þátttökugjald: kr. 5000 sem greiðist inn á reikning  0515-26-13773 kt. 690586-2239

Kvittun sendist á epta@epta.is

Umsókn skulu fylgja:

  1. Kvittun fyrir greiddu þátttökugjaldi
  2. Afrit af fæðingarvottorði / vegabréfi
  3. Ljósmynd í lit (jpg)
  4. Stutt lýsing á námsferli (100 orð) og virkt netfang nemanda, forráðamanns & kennara
  5. Verkefnalisti
  6. Staðfesting ábyrgðarmanns umsóknar: EPTA kennari keppanda – þar sem fram kemur yfirlýsing um stöðu og lengd náms
  7. Staðfesting ábyrgðarmanns keppanda: Forráðamaður keppanda – þar sem fram kemur yfirlýsing um heimild keppanda til að taka þátt með þeim skilyrðum sem sett eru varðandi birtingar á nöfnum, aldri, videohljóðritunum og öðrum tengdum upplýsingum sem notaðar verða við kynningu, framkvæmd og eftirfylgni keppninnar

III

Allar ákvarðanir dómnefnda eru endanlegar

Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna umsóknum án nánari skýringa

Þátttökugjald verður ekki endurgreitt

Keppendur skuli ekki taka þátt í öðrum tónlistarviðburðum 24.-25. nóv. 2018

Íslandsdeild EPTA áskilur sér rétt til að birta allar videohljóðritanir, ljósmyndir, viðtöl og önnur viðhlítandi gögn frá keppninni við kynningu, framkvæmd og eftirfylgni

IV

1. umferð – keppandi hljóðritar eigin píanóleik af eigin verkefnalista og setur á lokaða youtube rás. Hlekkir á lokaða youtube rás með píanóleik keppanda verði sendir rafrænt með umsókn

Dómnefnd velur úr innsendum videohljóðritunum að hámarki 10 keppendur úr hverjum flokki

Leiðbeiningar um gerð videohljóðritana má finna á heimasíðu EPTA www.epta.is

Leiðbeiningar um uppsetningu eigin youtube rásar má finna t.d. á eftirfarandi vefsíðum:

https://support.google.com/youtube/answer/1646861?hl=en
https://blog.bufferapp.com/create-a-youtube-channel

Úrslit úr 1. umferð verða tilkynnt 1. september 2018

V

2. umferð – þeim keppendum sem valdir verða úr hverjum flokki 1. umferðar gefst kostur að leika verkefni sín fyrir dómnefnd í Kaldalóni Hörpu 24. nóv. 2018

Úrslit – þeim keppendum sem valdir verða úr hverjum flokki 2. umferðar gefst kostur að leika verkefni sín fyrir dómnefnd í Kaldalóni Hörpu 25. nóv. 2018

Verðlaunaafhending og tónleikar vinningshafa verða í Kaldalóni Hörpu 25. nóv. 2018

Dregið verður um röð keppenda

Þátttakendum verður séð fyrir æfingaaðstöðu á meðan keppninni stendur

Keppnin verður opin almenningi til áheyrnar

VI

Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku í keppninni

Veittar verða viðurkenningar fyrir 1., 2. og 3. sæti í hverjum flokki og fyrir besta flutning á nýju verki Agnars Más Magnússonar*

Sigurvegarar hvers flokks koma fram við verðlaunaafhendinguna í Kaldalóni Hörpu og leika fyrir áheyrendur

VII

Verkefnalistar – öll verk skulu leikin utanbókar nema verk AMM:

1. flokkur 7-11 ára (fædd 31.12. 2007 eða síðar)

1. umferð 5 mín
Verk A: Etýða
Verk B: Klassík – kafli úr sónatínu / sónötu eða tilbrigði

2. umferð 5 mín
Verk C: Eitt eða fleiri Rómantísk eða 20/21. aldar verk

Úrslit 5 mín
Verk D: Frjálst val, má leika eitt eða fleiri verk, mega vera verk úr 1. umferð

2. flokkur 12-15 ára (fædd 31.12. 2003 eða síðar)

1. umferð 5-8 mín
Verk A: Etýða
Verk B: Klassík – kafli úr sónatínu / sónötu eða tilbrigði

2. umferð 5-10 mín
Verk C: Eitt eða fleiri Rómantísk eða 20/21. aldar verk

Úrslit 5-8 mín
Verk D: Frjálst val, má leika eitt eða fleiri verk, mega vera verk úr 1. umferð

3. flokkur 16-19 ára (fædd 31.12. 1999 eða síðar)

1. umferð 10-12 mín
Verk A: Etýða
Verk B: Klassík – kafli úr sónatínu / sónötu eða tilbrigði

2. umferð 15 mín (ath. verk AMM er ekki innifalið í þessum 15 mín)
Verk C: Eitt eða fleiri Rómantísk eða 20/21. aldar verk
Verk X: Frumflutningur á píanóverki Agnars Más Magnússonar (þarf ekki að vera flutt utanbókar)

Úrslit 10-12 mín
Verk D: Frjálst val, má leika eitt eða fleiri verk, mega vera verk úr 1. umferð

 

* Upplýsingar um dómnefndir VII. EPTA keppninnar má finna á www.epta.is
* Hægt verður að nálgast verk Agnars Más Magnússonar á www.epta.is frá 1. maí 2018