



Nú er öðrum keppnisdegi lokið í VIII. Píanókeppni EPTA.
Fjórir keppendur í 2. flokki komast áfram í seinni umferð sem verður á laugardaginn kl. 13.
Niðurstöður eftir fyrri umferð í 2. flokki, 18 ára og yngri eru eftirfarandi í stafrófsröð:
Nú er fyrsta keppnisdegi lokið í VIII. Píanókeppni EPTA.
Fimm keppendur komast áfram í seinni umferð sem verður á laugardaginn kl. 10:30.
Niðurstöður eftir fyrri umferð í 1. flokki, 14 ára og yngri eru eftirfarandi í stafrófsröð:




Umsóknarfrestur fyrir alþjóðlegu píanókeppnina í Róm hefur verið framlengdur til 11. október nk.

Aðalfundur Evrópusambands píanókennara verður haldinn þriðjudaginn 5. október 2021, kl. 20:00 í sal Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Lindargötu 51, 101 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
a) Skýrsla stjórnar
b) Skýrslur nefnda
c) Reikningar félagsins
d) Kosning formanns, stjórnarmanna og varamanna þeirra. e) Kosning tveggja skoðunarmanna
f) Ákvörðun félagsgjalda
g) Önnur mál.
Aðalstjórn félagsins býður sig fram til áframhaldandi stjórnarsetu. Framboð berist fyrir föstudag 01.október 2021 á netfangið: epta@epta.is
Við hvetjum félagsmenn til að mæta og taka þátt í félagsstörfum.
Bestu kveðjur,
Ólöf, Brynja og Einar.


Kæru vinir,
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Innilegar þakkir fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Stjórn Íslandsdeildar EPTA,
Ólöf, Einar og Brynja

Jólastund EPTA í minningu Árna Kristjánssonar sem var fyrirhugað að halda á bókasafni Mosfellsbæjar þann 17. desember fellur niður vegna aðstæðna í samfélaginu.
Með kveðju,
Stjórn EPTA
Fimmta innanlandsráðstefna EPTA á Íslandi verður haldin laugardaginn 19. september 2020 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í Kirkjulundi 11, 210 Garðabæ.
Dagskrá ráðstefnunnar:
Kl. 10:00
Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur fyrirlestur um tónlist og heilann. Helga Rut hefur um árabil stundað rannsóknir um efnið og mun veita okkur innsýn í niðurstöður.
Kl. 11:00
Umræður um EPTA keppnina sem verður haldin í nóvember 2021 sem og um viðburð félagsins 17. desember 2020 þar sem stendur til að halda hátíðlegan dag í minningu Árna Kristjánssonar, píanókennara sem hefði átt afmæli þann dag en dagurinn er einnig skírnardagur L. v. Beethovens.
Kl. 12:00 – 13:00
Hádegishlé að eigin vali t.d. Matstofa Garðabæjar eða verslunarkjarninn í nálægð skólans.
Kl. 13:00
Dr. Hafrún Kristjánsdóttir , sálfræðingur, lektor og sviðsstjóri í tækni- og verkfræðideild HR mætir með annað erindi um hvernig tónlistarnemar geta nýtt sér fræði íþróttasálfræðinnar. Erindið er sjálfstætt framhald fyrirlesturs sem hún hélt á síðustu innanlandsráðstefnu EPTA í nóvember 2019.
Kl. 14:15
Píanóleikarinn og píanókennarinn Kristinn Örn Kristinsson verður með erindi um Suzuki kennsluaðferðina. Kristinn Örn hefur kennt eftir Suzukiaðferðinni um árabil og er t.a.m. að fara af stað í haust með nýjan árgang nemenda í Suzukiaðferðinni fyrir píanó.
Áætlað er að ráðstefnulok verði um kl. 15:30
Kl. 16:30
Píanótónleikar í Salnum, Kópavogi – Kristín Jónína Taylor píanóleikari og Bryan Stanley píanóleikari flytja sónötur Beethovens. Fyrstu tónleikar í röð fleiri sem Salurinn í Kópavogi stendur fyrir í tilefni 250 ára afmælis L. v. Beethovens. Hugmyndina átti Jónas Ingimundarson en Peter Máté hefur unnið við skipulagningu. Enginn aðgangseyrir.
Skráning sendist á netfangið epta@epta.is seinast sunnudaginn 13. september 2020 kl. 23:59. Vinsamlega greiðið inn á reikning félagsins: 515-26-13773 kt.: 690586-2239. Hægt er að nýta styrk úr Endurmenntunarsjóði FT og Endurmenntunarsjóði FÍH.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta!
Stjórn EPTA á Íslandi.