Aðalfundur EPTA 2026


Kæru félagsmenn.

Aðalfundur EPTA á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 17.05.2026 kl. 11:00 í sal Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Lindargötu 51, 101 Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar:

  • a) Skýrsla stjórnar
  • b) Skýrslur nefnda
  • c) Reikningar félagsins
  • d) Kosning formanns, stjórnarmanna og varamanna þeirra.
  • e) Kosning tveggja skoðunarmanna
  • f) Ákvörðun félagsgjalda
  • g) Önnur mál

Hefðbundin aðalfundarstörf og kosning stjórnar.

Að loknum aðalfundi verða umræður um stöðu hljóðfærakennslu á Íslandi en margir kennarar hafa áhyggjur af stöðu menntunar hljóðfærakennara og verður fókus fundarins á píanókennslu.

Laufey Kristinsdóttir verður meðal gesta og segir frá hljóðfærakennaranámi í LHÍ.

Fjölmennum og látum okkur málin varða.