Fjórða innanlandsráðstefna Íslandsdeildar EPTA

Fjórða innanlandsráðstefna Íslandsdeildar EPTA verður haldin laugardaginn 9. nóvember 2019 í Hannesarholti frá kl. 10:00 til 17:00.

Á dagskránni verða erindi innlendra og erlendra fyrirlesara.

Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, lektor og sviðsstjóri í tækni- og verkfræðideild HR sem og dósent og sviðsstjóri íþróttafræðisviðs HR mun ræða um hvort tónlistarnemendur geti nýtt sér íþróttasálfræði;

Ástvaldur Traustason píanóleikari og Zen iðkandi verður með erindið: „Vakandi athygli“ – praktískar æfingar við hljóðfærið og í kennslu;

Þórarinn Stefánsson píanóleikari, píanókennari og útgefandi og Björgvin Þ. Valdimarsson píanókennari, hljóðfærakennari og útgefandi kynna nýútkomið efni;

Sirkka-Liisa Kärkkäinen frá Finnlandi verður með vinnustofu í skapandi tónlist. Sirkka-Liisa er kennari við Sibeliusarakademíuna í Helsinki og hefur áralanga reynslu af sköpunarþætti í píanókennslu. Efnið getur t.d. nýst vel í valþætti fyrir áfangapróf.

Von er á gestum frá Færeyjum, Grænlandi og meðlimum EPTA í Danmörku sem munu deila með okkur þeirra reynslu um píanókennslu og aðferðir.

Félagsmenn EPTA á Íslandi sem hafa sótt MTNA ráðstefnur síðustu ár í USA munu hafa til sýnis og kynna nótnabækur sem þeir hafa kynnst og notað í kennslu.

Að ráðstefnu lokinni verður farið á Hamingjustund sem verður tilkynnt síðar.

Verð kr. 13.500,- Innifalið er kaffi/te yfir daginn ásamt grænmetissúpu og brauði í hádeginu. Leggist inn á reikning 0515-26-13773 kt.: 690586-2239

Við vekjum athygli á að hægt er að sækja um styrk hjá Endurmenntunarsjóði KÍ fyrir ráðstefnunni.

Skráningarfrestur er til og með kl.12:00 á hádegi 31. október. Vinsamlegast sendið staðfestingu á skráningu og greiðslu á netfangið: epta@epta.is

Vonumst til að sjá sem flesta,

Stjórn EPTA á Íslandi