Kæru félagsmenn.
Aðalfundur EPTA á Íslandi verður haldinn sunnudaginn 17.05.2026 kl. 11:00 í sal Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Lindargötu 51, 101 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
- a) Skýrsla stjórnar
- b) Skýrslur nefnda
- c) Reikningar félagsins
- d) Kosning formanns, stjórnarmanna og varamanna þeirra.
- e) Kosning tveggja skoðunarmanna
- f) Ákvörðun félagsgjalda
- g) Önnur mál
Hefðbundin aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
Að loknum aðalfundi verða umræður um stöðu hljóðfærakennslu á Íslandi en margir kennarar hafa áhyggjur af stöðu menntunar hljóðfærakennara og verður fókus fundarins á píanókennslu.
Laufey Kristinsdóttir verður meðal gesta og segir frá hljóðfærakennaranámi í LHÍ.
Fjölmennum og látum okkur málin varða.