Nú er VII. Píanókeppni Íslandsdeildar EPTA lokið. Keppnin var haldin í Kaldalóni sal Hörpu í þetta skiptið og stóð yfir dagana 24. – 25. nóvember. 1. umferð hafði áður farið fram gegnum innsend myndbönd. Í dómnefnd sátu í þetta sinn Dr. Nicholas Pokki, Martin Lysholm Jepsen og Prof. Julia Mustonen-Dahlkvist yfirdómari.
Við viljum þakka öllum keppendum fyrir glæsilega frammistöðu í keppninni og jafnframt öllum þeim sem komu og hlustuðu dagana tvo.
Úrslit keppninnar urðu eftirfarandi:
1. flokkur – 11 ára og yngri
1. sæti Vasyl Zaviriukha
2. sæti Þórey María E. Kolbeins
2. flokkur – 15 ára og yngri
1. sæti Ásta Dóra Finnsdóttir
2. sæti Magnús Stephensen
3. sæti Alexander Viðar og Helga Sigríður E. Kolbeins
3. flokkur – 19 ára og yngri
1. sæti Björn Helgi Björnsson
2. sæti Baldvin Fannar Guðjónsson
3. sæti Ólína Ákadóttir
Verðlaun fyrir besta flutning á verki Agnars Más Magnússonar – Ómóróa hlaut Ólína Ákadóttir.
Grand Prix – verðlaun dómnefndar fyrir sérstaklega glæsilegan flutning hlaut Ásta Dóra Finnsdóttir.
Myndir: Finnur Þorgeirsson